|
Ný myndkort tilbúin til afhendingar |
|
Loftmyndir hafa lokið að vinna allar myndir sem teknar voru sumarið 2011. Þeir viðskiptavinir Loftmynda sem eru með viðahaldsamninga eru byrjaðir að fá sendar til sín nýar myndir og hæðalínur. Alls voru teknar lágflugsmyndir af 45 þéttbýlisstöðum og umþb. 12,000 km2 af miðflugsmyndum í dreifbýli.

Yfirlitsmynd sem sýnir loftmyndaflug frá árinu 2011. Rauð svæði eru lágflug, blá miðflug. |
|
|
Hjá Loftmyndum ehf. er nú tilbúin fyrsta útgáfa af TK-50 kortagrunninum sem er stafrænn vektorgrunnur af öllu Íslandi í viðmiðunarmælikvarðanum 1:50.000. Til að byrja með er hægt að fá TK-50 afhentan á SHP og DGN formi. DGN útgáfunni fylgir útlitsstýring sem einfaldar uppsetningu á nýjum kortum í MicroStation.
 
Kortið sýnir hluta Eyjafjarðar í TK-50.
TK-50 inniheldur eftirfarandi þekjur
- Hæðarlínur og hæðarpunktar
- Mannvirki
- Landnotkun
- Þéttbýlissvæði
- Bújarðir
- Sveitarfélög
- Póstnúmer
- Samgöngur
- Strandlína
- Eyjar
- Sjór
- Vatnafar
- Jöklar
- Vegir
- Hraun
- Örnefni
- Lýsigögn
- Hæðarlíkan
- Bakgrunnskort
- Hæðarskygging
- Hallalíkan
- Hallastefnulíkan
- Ýmis mörk, eins og td. landhelgi, kjördæmaskipting ofl.
Hægt er að fá sem viðbót við TK-50 stefnusett rennslislíkan vatnafars.

Eyjafjörður í TK-50. |
|
|
TK-250 fyrir iPhone, iPad og iPod Touch. |
|
TK-250 kort Loftmynda er hægt að sækja frá heimasíðu Loftmynda á GeoPDF® formi. Öllum er frjálst að sækja kortið og nota td. í GPS tækjum eða tölvum.
Með hugbúnaðinum "PDF Maps" er hægt að vinna með kortið í iPhone, iPad eða iPod Touch tækjum. Í "PDF Maps" er ma. hægt að
- stækka og minnka kortið (zoom in/out) og færa til
- skoða GPS hnit á Lat/Long (WGS84) eða Isn93 formi
- sjá rauntíma GPS staðsetningu
- finna staðsetningu eftir hniti
- mæla lengd og flatarmál
- setja inn leiðarpunkta (waypoints) og upplýsingar um þá
- vista eða senda leiðarpunkta
|
|
Lesa meira...
|
|
|