Skip to content
Vefstillingar
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size default color blue color green color
Þú ert hér: Heim

TK-250

TK-50

Yfirlit loftmyndatöku

Smelltu hér til að skoða

 

Smelltu hér til að skoða

Smelltu hér til að skoða

Loftmyndir gera samning við Landsbjörg

Landsbjörg og Loftmyndir ehf. hafa skrifað undir samning um afnot Landsbjargar af loftmyndum og kortum Loftmynda ehf. Með samningnum fær Landsbjörg aðgang að myndkortagrunni Loftmynda ehf. sem þekur allt Ísland og er með 50 sm upplausn í dreifbýli en 10 sm í þéttbýli. Myndkortagrunnurinn er uppfærður árlega. Samningurinn opnar einnig á aðgengi Landsbjargar að nýum kortagrunni Loftmynda ehf. TK-50. TK-50 er vektor grunnur í viðmiðunarmælikvarða 1:50.000 sem unnin er upp úr myndkortagrunni Loftmynda ehf. 

 

 

Gunnar Stefánsson og Marteinn S. Sigurðsson frá Landsbjörgu og Örn Arnar Ingólfsson frá Loftmyndum ehf. við undirritun samningins 

 
Ný þjónusta, uppfletting loftmynda

Nú er hægt að skoða á nýum kortavef Loftmynda ehf. allar loftmyndir af Íslandi sem fyrirtækið hefur tekið frá upphafi. Elstu myndirar eru frá árinu 1996 en það var eina árið sem teknar voru svart-hvítar myndir á vegum Loftmynda ehf. Myndirnar eru sýndar sem mislitir punktar á korti þar sem hver litur táknar ákveðið ár,  hægt er að sýna/fela á kortinu mismunandi ár. Boðið er upp á  að velja punkt á kortinu og opnast þá listi með upplýsingum um myndina sem að baki stendur og mögulega aðrar myndir sem teknar hafa verið á sama stað.

 

Yfirlit yfir flug Loftmynda ehf. frá 2009, 2010 og 2011

 
Loftmyndir gera samning við Árvakur

Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins og www.mbl.is, og Loftmyndir ehf. hafa skrifað undir samning um
afnot Árvakurs af loftmyndum og kortum Loftmynda ehf. Starfsmenn Árvakurs fá með þessu beinan
aðgang að myndkortum á vefþjónustusniði en gögn til kortagerðar verða afhent á tölvutæku formi til
notkunar fyrir hönnuði blaðsins. Einnig verður boðið upp þjónustu þar sem blaðamenn geta
leitað að staðsetningu atburða eftir t.d. örnefnum. Þetta nýtist vel á mbl.is þar sem hafa má "lifandi"
kort með fréttum þannig að lesendur geti betur áttað sig á staðháttum.

 

 

Guðlaug Sigurðardóttir frá Árvakri og Örn Arnar Ingólfsson frá Loftmyndum við undirritun samningins 

 
Ný myndkort tilbúin til afhendingar

Loftmyndir hafa lokið að vinna allar myndir sem teknar voru sumarið 2011. Þeir viðskiptavinir Loftmynda sem eru með viðahaldsamninga eru byrjaðir að fá sendar til sín nýar myndir og hæðalínur. Alls voru teknar lágflugsmyndir af 45 þéttbýlisstöðum og umþb. 12,000 km2 af miðflugsmyndum í dreifbýli.


Yfirlitsmynd sem sýnir loftmyndaflug frá árinu 2011. Rauð svæði eru lágflug, blá miðflug.